Um okkur

Gluggahöllin er fyrirtæki sem upphaflega var stofnað árið 2012 samkvæmt kennitölu, en stofnárið er í raun 2020 þar sem í upphafi var ákveðið að kaupa eldra félag og nafnabreyta því. Fyrirtækið flutti starfsemi sína í Borgarnes árið 2020.
Hjónin Júlíus Árni Rafnsson og Helle Larsen eiga og reka fyrirtækið sem er til húsa í rúmgóðu iðnaðarhúsnæði við Sólbakka 11 í Borgarnesi.
Starfsmenn Gluggahallarinnar eru allt faglærðir menn og með mikla reynslu úr faginu. Aðsetur Gluggahallarinnar er í Borgarnesi, en þjónustum við allt landið með glugga og hurðir.

Gæði og gott verð í Gluggahöllinni

Gluggahöllin flytur inn glugga og hurðir úr hágæða efnum sem þola óblíða íslenska veðráttu. Við erum í samstarfi við erlenda framleiðendur sem vinna vörur sínar úr sérunnum við frá Finnlandi skv. CE staðli. Einnig bjóðum við PVC glugga og hurðir, álglugga og tré/ál glugga og hurðir allar gerðir frá sama framleiðanda.
Markaðurinn er kröfuharður og íslenskir húsbyggjendur/eigendur hönnuðir og aðrir sem koma að vali á gluggum vita alveg hvað þeir vilja, og leggjum við okkar af mörkum til að uppfylla þær óskir viðskiptavina okkar.

Áhersla á góða þjónustu

Við leggjum mikla áherslu á gæði, góða þjónustu og gott verð. Og bjóðum upp á að koma á staðinn, taka mál og teikna upp glugga eða hurðir sem framleiða á, áður en pöntun er sett af stað. Eftir að gluggarnir koma til landsins höfum við annast ísetningu á þeim á höfuðborgarsvæðinu og öllu suðvestur horni landsins.

Mikil samkeppni er í innflutningi og sölu á gluggum, og því mikilvægt að velja réttan samstarfsaðila í slík verk. Gluggahöllin býður fyrst og fremst upp á viðurkennda vöru, sem er sérsniðinn að þínum þörfum og á góðu verði.

Starfsemi Gluggahallarinnar hefur farið vaxandi og markaðurinn tekið vel við sér, enda er Gluggahöllin að bjóða upp á mjög samkeppnishæf verð.